Menntaferð til Finnlands
Besti tíminn: Allt árið um kring
Ferðalengd: 3-5 nætur
Flugtími: 3 1/2 klst
Verðbil: Frá 135.000 kr.-
Helsinki, höfuðborg Finnlands, er skemmtileg og grípandi borg til þess að heimsækja. Með blöndu af nútíma og náttúrufegurð, glæsilegum arkitektúr, blómlegu menningarlífi og dýrindismatargerð hefur Helsinki eitthvað fyrir alla.
Í borginni er hægt að skoða fallega garða eða dást af bygginarlistinni og sökkt sér niður í finnska menningu. Auðvelt er að ferðast um borgina með almenningssamgöngum sem tryggir eftirminnilega og skemmtilega upplifun.
Finnland er talið vera með eitt besta menntakerfi í heimi og bjóðum við upp á ótal námskeiða í Helsinki sem kennarar og stofnanir geta sótt í til þess að geta fengið styrk frá stéttarfélagi sínu. Við undirbúum öll skjöl og allar kvittanir sem þarf til þessa að sækja um styrk vegna ferðarinnar, hvort sem er hjá KÍ eða hjá öðrum stéttarfélögum.
Við vorum að fá nýja kaffivél! Kíktu til okkar í kaffi og byrjum að skipuleggja næstu ferð fyrir þinn hóp með góðum fyrirvara!
Ganga með leiðsögumanni