Grísku Eyjarnar
Besti tíminn: Maí - Sept
Ferðalengd: 7-14 dagar
Flugtími: 5 1/2 klst
Verðbil: Frá: 210.000kr.-
Grísku eyjurnar eru frábær staður fyrir útskriftarhópa sem vilja njóta sín í fallegu umhverfi með ríka sögu og líflegu næturlífi. Í Grikklandi færð þú óspilltar strendur með grænbláu vatni þar sem þið getið slakað á og drekkt í ykkur sólina.
Ein af okkar uppáhalds eyjum til þess að fara með útskriftarnema er Rhodes. Eyjan hefur upp á nóg að bjóða en hún blómstrar af menningu, sögu og fegurð. Rhodes er hins vegar ekki bara saga og fornminjar heldur býr hún yfir frábæru næturlífi og eru ótal skemmtistaðir og barir í bænum þar sem hægt er að fagna þessum kaflaskilum við það að útskrifast!
Ótal afþreyingar eru á svæðinu en þarna er tilvalið að skella sér í siglingu, skella sér í Buggy ferð um svæðið eða Snorkla í tærum sjónum.
Farið er ýmist í tengiflugi eða beinu leiguflugi, það fer allt eftir því hversu stór hópurinn er.
Það er svo margt spennandi í boði! Sendu okkur fyrirspurn og við getum spjallað um möguleikana sem eru fyrir hendi fyrir ykkar hóp. Hlökkum til að heyra í ykkur.