Stórkostleg upplifun
Besti tíminn: Apríl - Október
Ferðalengd: 7 - 10 dagar
Flugtími: 5 klst
Verðbil: Frá 299.900kr.-
Að okkar mati er Króatía eitt fallegasta land Evrópu. Einnig er hann tilvalinn staður fyrir útskriftarferð þar sem Króatía býður upp á frábært skemmtanalíf, fallegt umhverfi, tæran sjó og ferskan miðjarðarhafsmat.
Í Króatíu eru margir möguleikar þegar kemur að gistingu en það fer eftir stærð hópsins hvað verður fyrir valinu. Við notum bæði 3 og 4 stjörnu hótel og það er misjafnt hvort hóparnir vilja hafa hálft fæði innifalið eða bara morgunmatinn.
Við skipuleggjum ferðina oft þannig að hópurinn dvelur helming ferðarinnar í strandarbænum Vodice og hinn helminginn á eyjunni Hvar. Bærinn Vodice er þekktur fyrir líflegar strendur og ódýrt verðlag. Eyjan Hvar er þekkt fyrir frábært næturlíf og afar fallegan aldagamlan miðbæ. Þar er tilvalið að leigja sér vespu eða fjórhjól og ferðast um eyjuna. Einnig mælum við með að leigja bát, skoða þannig hellinn Blue Cave og faldar einkastrendur á eyjunum í kring. Hápunktur ferðarinnar er svo Toga partý í kastala sem gnæfir yfir allan bæinn.
Það er svo margt spennandi í boði! Sendu okkur fyrirspurn og við getum spjallað um möguleikana sem eru fyrir hendi fyrir ykkar hóp. Hlökkum til að heyra í ykkur.
River Rafting með hópnum
Fyrir þá djörfustu
Siglt inn í fallegan helli
Heimsótt fallega vínbúgarða
Siglt um kristaltær höf Króatíu
River Rafting með hópnum
Fyrir þá djörfustu
Siglt inn í fallegan helli
Heimsótt fallega vínbúgarða
Siglt um kristaltær höf Króatíu
River Rafting með hópnum
Fyrir þá djörfustu
Siglt inn í fallegan helli
Heimsótt fallega vínbúgarða